Gjafalisti
DEC ehf.
Gjafalisti er gjafalistinn sem nær yfir allar verslanir. Safnið óskum úr Epal, ELKO, Líf og list, Kokku, IKEA og hvaðan sem er á einn fallegan lista – og deilið honum með einum hlekk. FYRIR BRÚÐKAUP, FERMINGAR, JÓL OG AFMÆLI • Bætið við vöru úr hvaða vefverslun sem er: límið hlekk og við sækjum nafn, mynd og verð. • Deilið beint úr Safari eða appi verslunar á Gjafalista. • Skannið strikamerki í búðinni eða takið mynd af vörunni. • Vantar hugmyndir? Yfir 300 gjafahugmyndir úr íslenskum verslunum, síðar eftir tilefni, aldri og verði. Einn smellur og gjöfin er komin á listann. • Veljið fjölda – átta glös, sex diskar – og merkið það sem ykkur langar mest í. EINFALT FYRIR GESTI • Gestir opna hlekkinn, velja gjöf og skrifa nafnið sitt. Enginn aðgangur, ekkert app. • Aðrir gestir sjá strax hvað er frátekið, svo enginn kaupir það sama tvisvar. • Þið sjáið hversu margt er frátekið – en aldrei hvað, og aldrei hver. Gjafirnar koma á óvart. YKKAR LISTI, YKKAR STÍLL • Útlit fyrir hvert tilefni: látlaust og glæsilegt fyrir brúðkaupið, litríkt fyrir sex ára afmælið. • QR-kóði fyrir boðskortið og hlekkur sem lítur vel út í Messenger og SMS. • Reikningsupplýsingar fyrir þau sem vilja heldur gefa pening. • Læsið listanum með lykilorði ef þið viljið. • Bjóðið makanum eða foreldri að sjá um listann með ykkur. Gjafalisti er ókeypis og á íslensku, ensku og pólsku. — — — IN ENGLISH Gjafalisti is a gift registry for Iceland that covers every shop. Collect wishes from any online shop onto one list and share it with a single link or a QR code on the invitation. • Add products by pasting a link, sharing from Safari, scanning a barcode in a shop, or taking a photo. • Guests reserve a gift in seconds without an account or an app, and see what others have already reserved. • You see how much is reserved, never what or by whom, so the gifts stay a surprise. • More than 300 gift ideas from Icelandic shops, filtered by occasion, age and price, added in one tap. • Looks for every occasion, from an elegant wedding list to a child's birthday. • Free, in Icelandic, English and Polish.