N1 - meira í leiðinni
N1 ehf.
Með N1-appinu er einfalt að sinna bílnum og halda utan um viðskiptin þín. Þú getur dælt eldsneyti, hlaðið rafbílinn, skráð kílómetrana og bókað tíma í dekkjaskipti eða smurþjónustu, allt á einum stað. Veldu þína stöð og fáðu þar lægsta verðið okkar á eldsneyti og hleðslu. Í appinu finnur þú eldsneytis- og hleðslustöðvar okkar um land allt og getur opnað fyrir dælingu eða hleðslu beint úr símanum. Þú getur líka leigt nagladekk, skráð ökutækin þín og séð þjónustusögu þeirra. Viðskiptayfirlitið hjálpar þér að halda utan um færslurnar og þú getur fylgst með punktastöðunni, tilboðum og kjörunum þínum hjá N1.