Georg og leikirnir
Islandsbanki
Georg og félagar eru mættir aftur til leiks í sínu öðru smáforriti. Leiktu þér með Georg og vinum hans og lærðu að telja, reikna og þekkja íslensku smápeningana. Smáforritið inniheldur 5 leiki sem allir hafa það að markmiði að vera bæði skemmtilegir og fræðandi fyrir yngstu kynslóðina. Spilaðu leikina og safnaðu smápeningum sem þú getur notað í Eyðsluklóna. Hvaða verðlaun grípur þú í þetta sinn? Geymdu og raðaðu verðlaununum í verðlaunahillurnar. Leikirnir: + Samstæðuspil - Þjálfaðu minnið með 10, 16 eða 24 spilum. + Peningaregn - Hjálpaðu Georg að grípa peningana og forðast tölurnar. + Peningabaukar - Lærðu að þekkja og flokka íslensku smápeningana í bauka. + Reikningur - Lærðu samlagningu og frádrátt. + Tengja punkta - Lærðu tölurnar með því að smelltu á punktana í réttri röð.